Ökumenn slösuðust í hörðum árekstri á Kalkofnsvegi í gærkvöldi

Ökumenn slösuðust í árekstri tveggja bíla á Kalkofnsvegi í miðbæ Reykjavíkur klukkan ellefu í gærkvöldi, en samkvæmt upplýsingum lögreglu í morgun munu meiðsl þeirra ekki hafa verið alvarleg. Voru ökumennirnir, tvær stúlkur, fluttir á slysadeild í Fossvogi. Bílarnir munu vera mikið skemmdir eftir áreksturinn.

Báðum bílunum var ekið vestur Kalkofnsveg áleiðis að Lækjargötu, og munu tildrög árekstursins hafa verið með þeim hætti að öðrum bílnum var ekið í veg fyrir hinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert