22 teknir fyrir of hraðan akstur á Akureyri í dag

Tuttugu og tveir ökumenn hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur á Akureyri í dag, að sögn lögreglunnar. Er þetta óvenju mikill fjöldi á einum degi, en allir voru þeir gómaðir á Hörgárbraut á allt að 85 km hraða, en hámarkshraði þar er 50 km.

Allir voru ökumennirnir mældir með hraðamyndavél sem staðsett er í ómerktri lögreglubifreið. Segir lögreglan að ekki sé óalgengt að þetta margir séu teknir fyrir of hraðan akstur þegar hún beiti þessari aðferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert