Komið upp um kannabisræktun í austurborginni

Lauf kannabisplöntunnar.
Lauf kannabisplöntunnar. mbl.is

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði framleiðslu á fíkniefnum í fjölbýlishúsi í austurborg Reykjavíkur síðdegis í dag. Innandyra voru fimmtíu og fimm marijúanaplöntur og voru þær flestar í miklum blóma. Tveir karlmenn á fertugs- og fimmtugsaldri voru handteknir vegna málsins. Þeim var sleppt eftir yfirheyrslu en málið telst upplýst að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert