498 hjón skildu og 577 pör slitu sambúð á síðasta ári

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar um skilnaði og sambúðarslit 2006, skildu 498 hjón að lögum og 577 pör slitu sambúð en með sambúðarslitum er átt við tilkynningu um slit sambúðar skráðri hjá Þjóðskrá. Alls voru börn úr sambúðarslitum og lögskilnuðum 1162.

Hagstofan segir, að allt frá árinu 1992 hafi foreldrar hér á landi átt þess kost að fara sameiginlega með forsjá barna sinna eftir skilnað. Á allra síðustu árum hafi færst í vöxt að foreldar nýti sér þetta fyrirkomulag en framan af var algengast að móðir færi ein með forsjá og árið 1994 átti þetta við um 70,6% barna úr lögskilnuðum og 65,3% barna úr sambúðarslitum. Það ár var sameiginleg forsjá einungis valin í 22,8% og 31% tilvika.

Undanfarin fimm ár hefur verið algengast að forsjá sé í höndum beggja foreldra og árið 2006 átti þetta við um nær þrjú af hverjum fjórum börnum úr lögskilnuðum (72,5%). Sameiginleg forsjá er talsvert algengari eftir sambúðarslit en lögskilnaði og árið 2006 völdu foreldrar sameiginlega forsjá í 84,9% tilvika þegar um sambúðarslit var að ræða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert