Hingað og ekki lengra

mbl.is/Jón Sigurðsson

Þetta grágæsapar með unga sína brást ókvæða við þegar ljósmyndari nálgaðist meira en góðu hófi gengdi. Þær hvæstu og breiddu út vængi til að koma því til skila að nærveru var ekki óskað. Það er mikið að gerast í náttúrunni þessa daganna og þó veröldin virðist ljúf á yfirborðinu gildir það eitt að nota þau ráð sem duga til að komast af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert