Frítt í strætó fyrir Kópavogsbúa
mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson
Tillagan og greinargerð með henni, var svohljóðandi:
„Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að frá og með næstu áramótum (2007/2008) verði gjaldfrjálst fyrir alla íbúa Kópavogs í Strætó.
Greinargerð:
Undanfarið hafa verið miklar umræður um Strætó bs. og sífellt minni notkun á þjónustu fyrirtækisins. Á sama tíma hefur fólki í Kópavogi og á höfuðborgarsvæðinu verið að fjölga hratt og aukinn umferðarþungi að verða sífellt stærra vandamál í samgöngum svæðisins. Ýmsir hafa bent á að efla megi almenningssamgöngur með því að veita gjaldfrjálsan aðgang að þjónustunni. Aukin notkun myndi síðan m.a. leiða af sér betri nýtingu umferðarmannvirkja og minni útblástur. Er í þessu sambandi meðal annars vísað til Akureyrar og Reykjanesbæjar, þar sem gjaldfrjálst er fyrir farþega í strætó.
Reykjavíkurborg hefur nú samþykkt gjaldfrjálsan aðgang unglinga og framhaldsskólanema í strætó og Hafnarfjörður hefur gert slíkt hið sama fyrir eldri borgara. Þá eru ekki margir aldurshópar eftir sem nota strætó, þ.e. aðallega börn og fólk af erlendri rót. Aðgangseyririnn þessara hópa sem eftir eru er um 300 milljónir króna, en kostnaðurinn við innheimtuna er á annað hundrað milljónir, þannig að það er ekki eftir miklu að slægjast.
Bæjarstjórn Kópavogs telur því mikilvægt að kanna hversu mikil áhrif verði af því að veita íbúum bæjarins gjaldfrjálsan aðgang að þjónustu Strætó og telur að verkefnið þurfi að vara í eitt ár a.m.k. Til Þess að ýta enn frekar undir notkun almenningssamgangna er jafnframt lagt til að skólaakstur í núverandi mynd verði afnuminn, en þess í stað verði strætisvagnakerfi bæjarins aðlagað þörf skólanna.
Tilraun þessi verður ekki gerð nema með auknu fjárframlagi til almenningssamgangna af hendi Kópavogsbæjar og má reikna með að verkefnið kosti um 90 milljónir króna, að frádreginni hagræðingu í skólaakstri, sem gæti numið 20 milljónum króna.”
Bloggað um fréttina
-
Elfur Logadóttir Tilgangslaust án breytinga á leiðarkerfi -
Þórdís Guðmundsdóttir Frábært, frábært, frábært! -
Hrafn Óttarsson Skilríki Takk -
Sigurður Elvar Þórólfsson Líkamlegt umhverfismat -
Marinó Már Marinósson Þetta er flott -
Heimir L Fjeldsted Ármann ekki af baki dottinn. -
Snorri Magnússon Frítt í strætó... -
Jón Ingi Cæsarsson Kópavogur í kjölfar Akureyrar.
Innlent »
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. febrúar 2007, Innlent Bæjarstjórn Seltjarnarness ósátt við tillögu Strætó um kostnaðarskiptingu
- Laugardagur, 16. júní 2007, Innlent Gagnrýna að ekki sé meira samráð milli sveitarfélaga um gjaldtöku í strætó
- Fimmtudagur, 14. júní 2007, Innlent Stúdentaráð fagnar fríum strætó
- Fimmtudagur, 25. október 2007, Innlent Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar 2,1 milljarður króna
- Miðvikudagur, 27. febrúar 2008, Innlent Frítt í strætó á Akranesi
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































