Skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot

Héraðsdómur Reykjaness hefud dæmt karlmann á unglingsaldri í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gegn tveimur ungum stúlkum. Maðurinn var sýknaður af hluta þeirra ákæruliða, sem hann var ákærður fyrir og var skaðabótakröfum á hendur honum vísað frá dómi.

Maðurinn var fundinn sekur um að hafa á síðasta ári nuddað kynfæri þriggja ára frænku sinnar utan klæða en þá var hann 17 ára gamall. Pilturinn var m.a. sýknaður af ákæru fyrir að hafa sumarið 2005 nuddað og sleikt kynfæri fjögurra ára gamallar stúlku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert