„Með verstu blæðingum sem ég hef upplifað“
Dekkjahöllin á Akureyri átti fullt í fangi með að hreinsa bíla sem lentu í tjöruslettum og steinkasti. Gríðarlegur umferðarþungi og hár hiti olli því að nýlagður vegur losnaði upp svo Vegagerðin átti erfitt um vik. mbl.is/Skapti
„Þessi kafli var klæddur um síðustu helgi og búið að sópa hann. Við fórum yfir hann á hádegi og allt virtist vera í góðu lagi svo við bjuggumst engan veginn við þessu.“
Um er að ræða tæplega 10 km langan vegarkafla frá Lónsbakka, við bæjarmörk Akureyrar, út að Þelamörk. Kristján segir að atburðarásin hafi verið mjög hröð, um hálftvöleytið hafi byrjað „blæðingar“ í malbikinu, þ.e.a.s. tjaran fór að koma upp í gegnum klæðninguna. Brugðist hafi verið skjótt við og kallaðir til bílar til að dreifa salla á veginn og hefta „blæðinguna“, en á þeim tæpa klukkutíma sem beðið var eftir bílunum hafi allur vegarkaflinn losnað upp. Umferðin hafi verið afar þung og aðstæður erfiðar.
„Við náðum tökum á þessu um sexleytið en hættum ekki fyrr en klukkan átta. Ég hef aldrei lent í öðru eins, þetta var alveg hræðilegt,“ segir Kristján. Fylgst verður með veginum alla helgina til þess að tryggja að ástandið endurtaki sig ekki.
Ekki er vitað hve margir bílar áttu leið um svæðið meðan ástandið var sem verst, en þó er ljóst að um mikinn fjölda er að ræða að sögn Pálma Þorsteinssonar, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Akureyri. „Almennt hefur fólk tekið þessu með ró enda skilur það að þetta er bara ólán og aðstæður sem erfitt var að ráða við. En okkur þykir þetta óskaplega leiðinlegt.“ Samið hefur verið við Dekkjahöllina á Akureyri um hreinsun á bílum þeirra sem eftir því leita og er fólki bent á að leita til Vegagerðarinnar, sem skrifi þá út beiðni fyrir hreinsuninni.
Að sögn Jóhanns Jónssonar hjá Dekkjahöllinni er einkum um að ræða steina sem hafa skotist inn í hjólaskálar bílanna, svo ískrar í bremsum, auk þess sem bílarnir eru útataðir í tjöru. „Við vorum að fram eftir kvöldi í gær og strax við opnun í dag var komin góð röð á planið fyrir utan,“ segir Jóhann. Þrátt fyrir allt sé samt hljóðið í fólkinu nokkuð gott enda sjái enginn ástæðu til að æsa sig þegar veðrið er svo gott. „Ætli sólin sé ekki að bjarga þessu.“
Bloggað um fréttina
-
Marta B Helgadóttir Hér er annar fréttaskrifari sem þarf á námskeið -
Helga Guðrún Eiríksdóttir JÆJA KALLINN -
Sigrún Ósk Arnardóttir Ég hélt að fréttin fjallaði um konu -
Sigríður Sigurðardóttir Karlmaður á blæðingum? -
Stefán Friðrik Stefánsson Skemmdir á þjóðveginum - kostulegt orðalag -
Pálmi Freyr Óskarsson „Með verstu blæðingum sem ég hef upplifað" -
Jenný Anna Baldursdóttir JAFNLEIÐINLEGASTA FRÉTT ÁRSINS.. -
Guðsteinn Haukur Barkarson Eins og dömubindaauglýsing! -
Gísli Bergsveinn Ívarsson Skrítin fyrirsögn -
Már Högnason Misskilin fyrirsögn veldur óðafumi
Innlent »
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 16. júní 2007, Innlent Tóku fram úr sjúkrabíl í forgangsakstri
- Föstudagur, 17. nóvember 2006, Innlent Fluttur með þyrlu á sjúkrahús eftir bílslys
- Fimmtudagur, 29. nóvember 2007, Innlent Axel kominn til Akureyrar
- Laugardagur, 30. júní 2007, Innlent Umferðarslys í Grímsnesinu
- Sunnudagur, 4. febrúar 2007, Innlent Átta fluttir á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































