Forsetaembættið fær nýjan bíl

Embætti forseta Íslands tekur í dag við nýrri Lexus tvinnbifreið. Tadashi Arashima, forstjóri Toyota í Evrópu, afhendir Ólafi Ragnari Grímssyni bifreiðina á Bessastöðum.

Bifreiðin er af gerðinni Lexus LS600h sem er fyrsti tvinnbíllinn í flokki viðhafnarbifreiða. Bíllinn er knúinn af Hybrid-kerfi sem samanstendur af rafmótor og bensínvél, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka