Almannahagsmunir réðu aðgerðum lögreglu
Frá mótmælunum við Snorrabraut í gær. AP
Arinbjörn Snorrason, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir lögregluna hafa boðið mótmælendum frá aðgerðarsamtökunum Saving Iceland að ganga heldur niður Laugarveg, þar sem Snorrabraut er ein stofnbrauta neyðarliðs og lögreglu í borginni. Varðstjórinn segir mótmælendur hafa hafnað boði lögreglunnar, því þeim var ekki heimilt keyra bíl með kerru, sem mótmælendur stóðu upp á. Þá stóðu nokkrir uppi á bílnum sjálfum.
Þegar lögregla reyndi að ná tali af ökumanni bílsins læsti hann að sér. Það var þá sem lögregla greip til aðgerða sem leiddi til handtöku fjögurra mótmælenda.
Arinbjörn segir nauðsynlegt að biðja um leyfi fyrir aðgerðum sem þessum, þar sem lögregla verður að skipuleggja fyrir fram og tryggja öruggar leiðir fyrir neyðarakstur.
Þá segir lögreglumaðurinn að fólkið hafi greinilega verið viðbúið handtöku, þar sem það hafði skrifað símanúmer lögfræðings hópsins á handlegginn. Slíkt þekki lögreglan frá mótmælum á Austfjörðum fyrir ári síðan.
Allir þeir sem handteknir voru í gær hafa verið látnir lausir. Þeir eru þó ekki lausir allra mála, þar sem þeir verða kærðir fyrir fara ekki að fyrirmælum lögreglu, fyrir umferðalagabrot, aðild að uppþoti og að hindra lögreglu í starfi.
Bloggað um fréttina
-
Hlynur Hallsson Almannahagsmunir Snorrabrautar? -
Guðmundur Björn Umhverfispappakassar! -
Finnur Ólafsson Thorlacius Löggan svarar -
Geir Ágústsson Var Ísland hertekið af nokkrum unglingum? -
Þorkell Sigurjónsson AÐ STÍGA VARLEGA TIL JARÐAR. -
Ólafur Jóhannsson Hverju ætla "Saving Iceland" að bjarga? -
Oddgeir Einarsson Ég mótmæli -
Sigurjón Njarðarson Minn eða þinn réttur? -
Rögnvaldur Hreiðarsson Og lögreglan er þá vandamálið!!
Innlent »
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 23. apríl 2008, Innlent Lögregla fylgist grannt með
- Laugardagur, 10. nóvember 2007, Innlent Óvenju róleg nótt í Reykjavík
- Þriðjudagur, 2. október 2007, Innlent Mótmæli gegn Íslandi í London
- Laugardagur, 14. júlí 2007, Innlent Mótmælendur Saving Iceland loka Snorrabraut
- Mánudagur, 9. apríl 2007, Innlent Umferðin þung á Vesturlands- og Suðurlandsvegi
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































