Lögregla lokaði nektarstað í Lækjargötu

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur afturkallað leyfi veitingastaðarins Strawberries í Lækjargötu í Reykjavík til reksturs. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, að starfsemin, sem fór fram á staðnum reyndist ekki samrýmast starfsleyfinu. Hefur veitingastaðnum því verið lokað.

Grunur mun hafa leikið á að nektarsýningar færu fram á staðnum, sem aðeins hafði kráarleyfi. Samkvæmt nýjum lögum eru nektarsýningar bannaðar nema sérstakt leyfi sé fyrir hendi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka