Samið um uppbyggingu leik- og grunnskóla á Keflavíkurflugvelli

Reykjanesbær, Keilir og Hjallastefnan undirrituðu í dag samkomulag um uppbyggingu og rekstur leik- og grunnskóla á háskólasvæði Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs á Keflavíkurflugvelli.

Hjallastefnan mun opna leikskólann sem hlotið hefur nafnið Völlur,  hinn 15. ágúst nk. í húsnæði sem áður hýsti leikskóla sem bandaríski herinn rak.  Grunnskóli fyrir 1.-4. bekk verður jafnframt starfræktur frá og með þessu hausti en eldri börn á svæðinu sækja nám sitt í aðra grunnskóla Reykjanesbæjar.

Starf skólanna verður í samræmi við Hjallastefnuna en fyrirtækið hefur langa reynslu af rekstri leikskóla með góðum árangri. Hjallastefnan hefur þegar ráðið stjórnendur og starfsfólk til starfa við báða skólana. Markmið samkomulagsins er að byggja upp öfluga og framsækna skóla sem hafi bestu mögulegu aðstæður til þróunar og nýsköpunar í íslensku skólakerfi.

Reykjanesbær og Keilir lýsa jafnframt yfir þeim vilja sínum að standa sameiginlega að frekari framþróun skólastarfs og menntunar á svæðinu á öllum sviðum á næstu árum í samstarfi við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla á svæðinu sem og íslenska háskóla og ráðuneyti menntamála. Markmið slíks samstarf verði nýsköpun í skóla og menntamálum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert