Tilkynning utanríkisráðuneytis varðandi flug rússneskra herflugvéla

Þann 14. ágúst sl. hófust rússneskar heræfingar við norður heimskaut. Íslensk stjórnvöld hafa gert ráð fyrir að hluti þeirrar æfingar gæti falist í flugi langdrægra sprengjuflugvéla suður Atlantshaf og hefur Ratsjárstofnun verið sérstaklega á varðbergi vegna þessa.

Í tilkynningu utanríkisráðuneytis segir jafnframt að Ratsjárstofnun sé sérstaklega á varðbergi vegna þessa. Rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt 17.ágúst bárust upplýsingar um að slíkt flug væri væntanlegt. Upp úr hálf þrjú um nóttina voru fyrstu merki greind Norðaustur af landinu. Í allt áttu sér stað þrjár mismunandi ferðir rússneskra sprengjuflugvéla um loftrýmiseftirlitssvæði Atlantshafsbandalagsins sem Ísland tilheyrir.

Í tveimur tilfellum var farið beint í suður austan af landinu, en í því þriðja komu flugvélarnar inn í eftirlitssvæðið norðaustur af Íslandi. Þær flugvélar flugu norður af landinu, fyrst í vesturátt, en beygðu svo til suðurs milli Íslands og Grænlands og fóru hringferð um landið. Vélarnar hurfu heim á leið og var sérstöku eftirliti lokið síðdegis í gær.

Fylgst var með fluginu allan tímann af Ratsjárstofnun og upplýsingum miðlað til viðeigandi stofnanna innanlands, ásamt því að skipst var á upplýsingum við viðeigandi herstjórnir innan Atlantshafsbandalagsins. Viðbrögð við fluginu voru samhæfð á milli þriggja bandalagsríkja, Íslands, Noregs og Bretlands. Breskar og norskar orrustuþotur mættu sprengjuflugvélunum og fylgdu þeim hluta leiðarinnar, að því er kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert