Barinn fyrir afskipti af skemmdaverkum

Ráðist var á mann sem reyndi að stöðva skemmdarverk í miðbæ Reykjavíkur um klukkan sjö í gærkvöldi. Maðurinn reyndi að stöðva nokkra aðra við að skemma bifreiðar. Þegar hann gerði sig líklegan til þess að gera lögreglu viðvart um athæfið réðust mennirnir að honum, eltu hann inni í hús og veittu honum þar áverka.

Mennirnir voru handteknir og gistu fangageymslur í nótt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert