Lenti á Keflavíkurflugvelli með óðan farþega

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur.

Lenda varð vél þýska flugfélagsins Lufthansa á Keflavíkurflugvelli um klukkan átta í morgun vegna manns sem hafði orðið óður um borð og lét öllum illum látum. Áhöfn flugvélarinnar tókst að koma böndum á manninn, en ákveðið var að lenda í Keflavík og setja þann óða í hendur lögreglu.

Vélin var á leið frá Los Angeles til München.

Lögreglan á Suðurnesjum sótti manninn um borð í vélina og flutti í fangageymslur sínar. Þar bíður maðurinn nú yfirheyrslu. För vélarinnar var haldið áfram til Þýskalands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert