Skothvellur við Þingvallavatn

Lögreglunni á Selfossi barst á tólfta tímanum í gærkvöldi tilkynning um að skothvellur hefði heyrst í sumarbústaðahverfi við Þingvallavatn. Lögreglumenn fóru á staðinn þar sem skothvellurinn hafði heyrst og lagði hald á haglabyssu og skothylki. Enginn var handtekinn í tengslum við málið. Ekki liggur fyrir hvað viðkomandi gekk til með þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert