Sló til lögreglumanns

Fjórir menn gistu fangageymslur lögreglunnar á Suðurnesjum vegna ölvunar og óspekta. Einn þeirra sló til lögreglumanns og verður færður til skýrslutöku þegar af honum rennur áfengisvíman í dag.

Tveir voru kærðir fyrir meinta ölvun við akstur. Þá voru 17 ökumann stöðvaðir vegna vanbúnaðar eða fyrir ranga notkun ljósa á bifreiðum sínum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert