Nokkrir bílar rákust saman á Bústaðavegi

Nokkrir bílar rákust saman á Bústaðavegi í Reykjavík á móts við verslun Select um klukkan 9 í morgun. Að sögn lögreglu var tilkynnt að sjö bílar hefðu lent í árekstri en sú tala er þó ekki staðfest. Ekki er vitað til að neinn hafi meiðst alvarlega en einhverjar skemmdir urðu á bílunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert