Féll af bifhjóli eftir að lögregla veitti honum eftirför

Lögreglumenn mældu í nótt hraða bifhjóls á Reykjanesbraut skammt frá Vogavegi og sinnti ökumaður ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Hélt hann ferð sinni áfram eftir Reykjanesbraut áleiðis til Reykjavíkur og misstu lögreglumenn sjónar af honum.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var gert viðvart og komu lögreglumenn frá því umdæmi að ökumanni bifhjólsins þar sem hann hafði fallið af hjólinu á malarvegi í Hvassahrauni.

Að sögn lögreglunnar slasðist maðurinn ekki og litlar skemmdir urðu á hjólinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert