Skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárásir

Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt 19 ára karlmann í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir á sama manninn með mánaðar millibili. Árásarmaðurinn var einnig dæmdur til að greiða manninum, sem hann réðist á, 365 þúsund krónur í bætur.

Fyrri árásin var gerð í apríl en þá sló ungi maðurinn hinn manninn í andlitið, höfuðið með þeim afleiðingum m.a. að tönn brotnaði. Síðari árásin var gerð í maí en þá sló ungi maðurinn hinn í andlitið og sparkaði einnig í hann og þá flísaðist m.a. úr framtönn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert