Hernaðarandstæðingar fagna friðarsúlu

Samtök hernaðarandstæðinga hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem samtökin lýsa ánægju sinni með þá ákvörðun að vekja athygli á mikilvægi friðarbaráttu í heiminum sem felist í því að sérstök friðarsúla listakonunnar Yoko Ono sé afhjúpuð í Viðey. Sömuleiðis fagna SHA vilja borgaryfirvalda til að kynna Reykjavík sem miðstöð friðar.

Í fréttatilkynningunni segir að til að slík stefnumörkun sé trúverðug verði þó fleira að koma til. Eigi Reykjavík að geta staðið undir nafni sem friðarborg er fráleitt að bjóða þangað hernaðarbandalögum til fundarhalda, þar sem lagt er á ráðin um vígvæðingu og stríðsrekstur. Fundir á borð við þingmannaráðstefnu NATO geta ekki samrýmst stöðu Reykjavíkur sem friðarmiðstöðvar.

Á sama hátt sé fráleitt að finna friðarsúlu af þessu tagi stað nokkur hundruð metra frá þeim stað í Sundahöfn þar sem stærstu og voldugustu herskip NATO liggi við bryggju á hverju sumri. Er spurt hvort ef til vill sé ætlunin að friðarsúlan í Viðey gegni hlutverki innsiglingarljóss fyrir herskip sem hingað koma?

SHA hvetja borgaryfirvöld til þess að nota tækifærið við vígslu friðarsúlunnar og lýsa því yfir að herskipakomur í Sundahöfn verði ekki heimilaðar í framtíðinni. Þannig gæti Reykjavíkurborg stigið raunverulegt skref í átt til friðar og afvopnunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert