Farmur féll af flutningabíl og olli miklum umferðartöfum

mbl.is/Júlíus

Miklar tafir urðu á umferð vestur Miklubraut í Reykjavík um fimmleytið í dag þegar hluti af farmi féll af flutningabíl. Tepptust tvær af þremur akreinum af þessum sökum á meðan farmurinn, flekamót, var settur aftur á bílinn. Að sögn lögreglunnar urðu skemmdir á einum bíl sem var kyrrstæður fyrir aftan vörubílinn er mótin féllu af honum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert