Kjaramálaráðstefna Samiðnar mótmælir siðleysi atvinnurekenda

Kjaramálaráðstefna Samiðnar mótmælir siðlausu framferði atvinnurekenda gagnvart starfsréttindum iðnaðarmanna í ályktun ráðstefnunnar sem haldin var á Hótel Selfossi í dag.

Í ályktuninni segir m.a: „Í blindri gróðahyggju ráða atvinnurekendur til sín ómenntað starfsfólk í störf sem krefjast 4 ára menntunar. Þrátt fyrir að fjöldi erlendra starfsmanna sé ráðinn til fyrirtækja í byggingariðnaði á lægri launum en þekkist meðal íslenskra iðnaðarmanna þá hefur nýtt íbúðarhúsnæði hækkað gríðarlega í verði á liðnum misserum."

Í ályktun ráðstefnunnar um kjaramál er lögð áhersla á að stöðugleiki og vaxandi kaupmáttur verði tryggður í komandi kjarasamningsviðræðum og að bilið á milli þeirra sem setið hafa eftir á kauptöxtum og þeirra sem notið hafa launaskriðs verði minnkað. Vefur Samiðnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert