Dagur tekur við lyklavöldum af Vilhjálmi

Dagur B. Eggertsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Dagur B. Eggertsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson mbl.is/Brynjar Gauti

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson afhenti Degi B. Eggertssyni lyklavöldin að ráðhúsi Reykjavíkur nú síðdegis en á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag var Dagur kjörinn borgarstjóri. Dagur hefur verið oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórninni á yfirstandandi kjörtímabili en eins og fram hefur komið féll fráfarandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur síðastliðinn fimmtudag er Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins gekk til liðs við þáverandi minnihluta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert