Bílvelta á Hellisheiði, varað við mikilli hálku

mbl.is/Júlíus

Tilkynnt var um bílveltu á miðri Hellisheiði fyrir stundu, ekki er talið að neinn hafi meiðst þar alvarlega. Lögreglan á Selfossi varar ökumenn við því að mikil hálka er nú á Hellisheiði en þar frysti snögglega nú á sjötta tímanum.

Lögreglan á Selfossi fékk í morgun tilkynningu um útafakstur á Hvammsvegi austan við Selfoss. Ökumaðurinn reyndist ekki meiddur, en hins vegar mjög ölvaður að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert