Á 186 km hraða á Jökuldal

Ökumaður var stöðvaður eftir að hann varð uppvís að ofsaakstri á þjóðvegi 1 á Jökuldal aðfararnótt laugardagsins. Mældist bíll mannsins á 186 km hraða og segir lögreglan á Seyðisfirði, að þetta sé mesti hraði ökutækis, sem mældur hafi verið hjá embættinu. Eldra „metið" var 159 km hraði.

Ökumaðurinn var í framhaldinu sviptur ökuréttindum í þrjá mánuði. Þá var annar ökumaður tekinn fyrir ölvun við akstur á sunnudagskvöld í umdæmi lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert