Myndaðir á mikilli ferð

Á fjórtánda hundrað ökumanna sem fór of hratt var myndaður með umferðarmyndavélum í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í síðasta mánuði. Slíkar vélar eru staðsettar víða á svæðinu, segir í tilkynningu lögreglunnar.

Nú hefur nýr vöktunarstaður bæst við en það eru gatnamót Sæbrautar og Langholtsvegar en þar hefur borið á hraðakstri.

Brot átta ökumanna voru mynduð á Hofsstaðabraut á móts við Hörgslund í Garðabæ í gær. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru sextán ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 48 km/klst. Þarna er 30 km hámarkshraði en sá sem hraðast ók var mældur á 56.

Lögreglan hóf eftirlit á Hofsstaðabraut kjölfar ábendinga frá íbúum í hverfinu sem kvörtuðu undan hraðakstri á þessum stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert