Zumba sveiflan ryður sér til rúms á Íslandi

Zumba er nýjasta líkamsræktaræðið hér á landi en þar eru taktfastar mjaðmasveiflur notaðar til að styrkja líkama og sál. Á morgun verður haldinn stærsti zumba-tími landsins til styrktar UNIFEM.

Söfnunarátakið fyrir UNIFEM verður haldið í Valsheimilinu klukkan tvö. Það kostar þúsund krónur að taka þátt og mun ágóðinn renna óskiptur til átaks sem UNIFEM stendur fyrir til aðstoðar kvenna í Suður-Ameríku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert