Landsvirkjun vill selja raforku til netþjónabúa en ekki nýrra álvera

Höfuðstöðvar Landsvirkjunar.
Höfuðstöðvar Landsvirkjunar. mbl.is/Golli

Landsvirkjun hefur því ákveðið að hefja viðræður um raforkusölu við fyrirtæki sem hyggjast byggja upp netþjónabú á Íslandi. Mun Landsvirkjun þess vegna ekki ganga til samningaviðræðna að sinni við fyrirtæki sem hyggja á byggingu nýrra álvera á Suður- eða Vesturlandi.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir, að fyrirtækið hafi í haust átt könnunarviðræður við fjölmörg fyrirtæki sem vilja byggja upp starfsemi á Suður- og Vesturlandi og hafa áhuga á raforkukaupum úr virkjunum þeim sem fyrirhugaðar eru í neðri hluta Þjórsár. Ljóst sé, að eftirspurnin eftir orku sé langt umfram framboð, þannig að ekki verði hægt að mæta óskum allra.

Landsvirkjun segir að raforkukaupendurnir, sem rætt hafi verið við, stundi fjölbreytta starfsemi, svo sem álvinnslu, kísilvinnslu, hreinsun kísils fyrir sólarrafala og rekstur netþjónabúa. Stjórn Landsvirkjunar telji mikilsvert að fyrirtækið fái sem hæst verð fyrir raforkuna, dreifi áhættu og auki fjölbreytni viðskiptavina sinna.

„Landsvirkjun hefur því ákveðið að hefja viðræður um raforkusölu við fyrirtæki sem hyggjast byggja upp netþjónabú á Íslandi. Einnig eru í undirbúningi viðræður við fyrirtæki á sviði kísilhreinsunar fyrir sólarrafala. Ekki er enn hægt að greina frá því hver þessi fyrirtæki eru. Líkleg staðsetning þessarar starfsemi verður á Suðurlandi og Reykjanesi. Áhersla Landsvirkjunar á netþjónabú og sólarkísil byggist á því að vænta má hærra raforkuverðs í þeim viðskiptum en við aðra stórkaupendur. Landsvirkjun mun þess vegna ekki ganga til samningaviðræðna að sinni við fyrirtæki sem hyggja á byggingu nýrra álvera á Suður- eða Vesturlandi.

Rafmagni úr þeim virkjunum sem eru í undirbúningi í Þjórsá telur Landsvirkjun að verði best ráðstafað í þágu starfsemi af þeim toga sem að ofan er lýst ásamt hugsanlega aukinni sölu til álvera sem þegar eru starfandi í landinu. Undirbúningi virkjana í Þjórsá miðar áfram þannig að framkvæmdir gætu hafist á seinni hluta næsta árs ef allt gengur eftir," segir í tilkynningu Landsvirkjunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert