Icelandair býður börnum með krabbamein í skemmtiferð

Icelandair og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna undirrita í dag samning sem felur í sér að Icelandair býður krabbameinssjúkum börnum árlega í skemmtiferð til Evrópu næstu fimm árin.

Í haust bauð Icelandair krabbameinssjúkum börnum í Lególand í Billund. Icelandair lánar flugvél og áhöfn endurgjaldslaust til verkefnisins, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert