Sex sækja um embætti ríkissaksóknara

Sex umsóknir bárust um embætti ríkissaksóknara en umsóknarfrestur rann út í gær. Dómsmálaráðherra veitir embættið frá og með næstu áramótum en þá lætur Bogi Nilsson af störfum.

Umsækjendur eru eftirtaldir:

Egill Stephensen, saksóknari við embætti ríkissaksóknara
Guðjón Ólafur Jónsson, hæstaréttarlögmaður
Jón H. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi
Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari við embætti ríkissaksóknara
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert