Umferð hleypt á Suðurlandsveg

Frá slysstað fyrr í dag
Frá slysstað fyrr í dag mbl.is/Júlíus

Suðurlandsvegur við Litlu kaffistofuna var opnaður aftur nú fyrir stundu og er umferð komin í eðlilegt horf samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Vettvangsrannsókn lögreglu er lokið á svæðinu en rannsókn málsins heldur áfram að að sögn lögreglunnar á Selfossi.

Banaslys varð á veginum fyrr í dag þar sem fólksbifreið og vöruflutningabifreið rákust saman. Ökumaður fólksbifreiðarinnar, sem var einn í bílnum, lést við áreksturinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka