Háskólatorg, Gimli og Tröð vígð

stækka

mbl.is/Kristinn

Nýbyggingar Háskóla Íslands; Háskólatorg, Gimlir og Tröð, voru vígðar með hátíðarbrag í dag, laugardaginn 1. desember. Byggingarnar eru samtals um 10.000 fermetrar og hýsa fjölþætta þjónustu við nemendur, starfsfólk og gesti Háskólans, deildir og rannsóknastofnanir. „Með þessum breytingum er Háskólinn í raun og sann nýr háskóli,“ sagði Kristín Ingólfsdóttir, rektor, m.a. þegar hún ávarpaði samkomuna.

Við opununarathöfnina ávarpaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra gesti og Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Háskólasjóðs Eimskips afhjúpaði listaverk Finns Arnar Arnarssonar Vits er þörf þeim er víða ratar sem prýðir miðrými Háskólatorgs. Þá flutti Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor ávarp, einnig Dagný Ósk Aradóttir, formaður Stúdentaráðs Háskólans, Haukur Agnarsson, formaður stjórnar Félagsstofnunar stúdenta og Gunnar Sverrisson, forstjóri Íslenskra aðalverktaka.

Menntamálaráðherrra sagði m.a. vígsluna í dag að með opnun Háskólatorgsins, Gimlis og Traðar hefði mikið og nauðsynlegt verk verið unnið í þágu starfsmanna og ekki síst nemenda Háskóla Íslands. „Þetta framtak mun án efa skila skólanum nær því markmiði sínu að komast í hóp hundrað bestu háskóla í heimi. Það ferðalag er hafið – við erum komin vel á veg – ánægjulegir áfangastaðir hafa verið heimsóttir en enn er drjúgur spölur eftir“, sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Í heild má gera ráð fyrir að um 1500 nemendur og starfsmenn eigi aðstöðu á Háskólatorgi og Gimli en auki þess muni þar leggja leið sína þúsundir aðrir nemendur  Háskóla Íslands, starfsfólk og gestir. Fyrsta skóflustunga að byggingunum var tekin 6. apríl 2006 en forsöguna má rekja til rektorstíðar Páls Skúlasonar, sem hafði lengi átt þann draum að byggt yrði á háskólasvæðinu Háskólatorg, vegleg þjónustu- og menningarmiðstöð er gæfi tækifæri og tilefni til aukinna samskipta nemenda, starfsfólks og gesta. Byggingarnefnd Háskólatorgs var skipuð haustið 2003 og hófst þegar handa við undirbúning. Unnin var kröfu- og þarfalýsing sem gegndi lykilhlutverki í alverksútboði í framhaldi af forvali. Ákveðið var að byggingarkostnaður yrði fastur,1.600 milljónir, og var alverktaka og hönnuðum gert að leggja fram lausnir miðað við kröfu- og þarfalýsingu fyrir þá fjárhæð. Tillögurnar voru því eingöngu metnar út frá hönnunarlegum forsendum. Var þetta í fyrsta skipti sem þessari útboðsaðferð var beitt á Íslandi við opinbera framkvæmd.Fimm alverktakar voru valdir til að keppa um hönnun og byggingu Háskólatorgs vorið 2005. Hlutskarpastir í keppninni urðu Íslenskir aðalverktakar ásamt Hornsteinum arkítektum og Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar.  Happdrætti Háskóla Íslands fjármagnaði stærstan hluta framkvæmdanna. Að auki seldi Háskólinn fasteignir við Aragötu og Oddagötu og Félagsstofnun stúdenta fjárfesti í fimmtungshlut í Háskólatorgi. Framlag Háskólasjóðs Eimskipafélags Íslands nam 500 milljónum og skipti framlagið sköpum um að Háskólatorgið varð að veruleika.


Eftir að verkið hófst var ákveðið að byggja þriðju hæðina á Gimli. Heildarkostnaður við byggingarnar, með verðbótum, opinberum gjöldum og öllum búnaði er um 2,3 milljarðar króna.Nýbyggingarnar hafa undanfarin ár gengið undir nafninu Háskólatorg en skiptast í þrjá hluta. Efnt var til samkeppni innan háskólasamfélagsins um nöfn og hlutskörpust urðu nöfnin Háskólatorg, Gimli og Tröð. Innangengt er milli bygginganna sem tengja að auki saman ýmsar aðrar byggingar á háskólasvæðinu.


Háskólatorg er á svæðinu milli Aðalbyggingar og Íþróttahúss Háskólans. Þar er m.a. veitingasala, stórir fyrirlestrarsalir og alrými sem nýtist fyrir ýmiskonar viðburði. Þar verður einnig þjónustuborð fyrir nemendur og gesti Háskólans. Í Háskólatorgi verða til húsa þjónustustofnanir við nemendur; Félagsstofnun stúdenta, Stúdentaráð Háskóla Íslands, Alþjóðaskrifstofa H.Í., Nemendaskráf H.Í. og Námsráðgjöf auk Bóksölu stúdenta. Einnig lesaðastaða, tölvuver og fleira.  

Gimli stendur þar sem áður var bílastæði milli Odda og Lögbergs. Þar verður m.a. lesrými, fyrir nemendur í grunn- og framhaldsnámi, rannsóknastofnanir, vinnurými kennara og skrifstofur deilda. Háskólatorg og Gimli tengjast með Tröð þar sem m.a. eru fyrirhugaðar sýningar á vegum Listasafns Háskóla Íslands.

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sagði í dag að byggingarnar sem nú eru teknar í notkun skapi skólanum stórkostlega umgjörð „til að sinna sínu mikilvæga hlutverki – hér eru glæsilegir fyrirlestrasalir, aðstaða til rannsókna, kennslustofur, tölvuver, lesrými, matsalur, þjónusta við stúdenta og starfsfólk. Jafnframt tengjast þessar byggingar öðrum byggingum og gerbreyta notkunarmöguleikum þeirra. Með þessum breytingum er Háskólinn í raun og sann nýr háskóli.”

Kristín sagði jafnframt: „Þessar glæsilegu byggingar eru einstaklega góður rammi þeirrar metnaðarfullu stefnu sem við höfum mótað og sem mótar í dag allt starf skólans. Megininntak stefnunnar er að skila samfélaginu hámarksarði af þeirri fjárfestingu sem það hefur lagt í þessa mikilvægu menntastofnun.  Það gerir skólinn með því að verða betri skóli, með því að skipa sér í fremstu röð.Við náum hér í dag mikilvægum áfanga á þessari leið.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »
Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

Prófa viðvörunarboð í farsíma

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...
10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HONDA CR-V VARAHLUTIR 1998-2001+Hyunday Tuson hedd
Á til notaða varahluti í Honda cr-v 1997-2001 td. drif toppgrind,hedd og margt s...
TILBOÐ Á DEKKJUM
Tilboð á dekkjum 155 R 12 kr. 6.900. 135 R 13 kr. 5900. 165 R 13 kr. ...
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01 4 stk. Verð 15.000kr. Uppl. í sím...
Furminator kambarnir eru til í öllum stærðum
Ný sending af Furminator kömbunum vinsælu 4 stærðir í boði fyrir öll gæludýr sma...
 
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...