Talsvert frost inn til landsins

Veðurstofan spáir norðaustan og austan 8-13 m/s á annesjum norðantil og með suðausturströndinni, í dag en annars hægari vindi. Skýjað verður með köflum og stöku él um landið austanvert, annars léttskýjað að mestu. Frost verður  víða 0 til 6 stig, en talsvert frost verður  inn til landsins. Á morgun verður hægviðri með éljum í flestum landshlutum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert