Sérsveitin kölluð út

Sérsveitin var kölluð út til að kljást við vopnaða menn …
Sérsveitin var kölluð út til að kljást við vopnaða menn í annarlegu ástandi. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við handtöku tveggja manna um klukkan átta í kvöld. Lögreglu barst boð um tvo menn í Holtahverfinu í Reykjavík sem ógnuðu borgurum með eggvopni. Annar þeirra var blóðugur á fæti.

Mennirnir voru handteknir eftir að lögreglan stöðvaði för þeirra á fólksbíl sem þeir höfðu ekið utan í bíla í nærliggjandi götum. Báðir voru mennirnir að sögn lögreglu í annarlegu ástandi og var annar þeirra færður til slysavarðstofu vegna áverka á fæti.

Meira er ekki vitað um þetta mál að svo stöddu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert