„Hann er frábær þjálfari og gerði öllum grein fyrir sínum hlutverkum,“ sagði knattspyrnukonan Rakel Hönnudóttir í Dagmálum.
Rakel, sem er 35 ára gömul, á að baki 103 A-landsleiki fyrir Ísland en hún lék síðast í efstu deild sumarið 2020 og hefur ekki hug á því að snúa aftur á knattspyrnuvöllinn.
Rakel lék með Breiðabliki þegar Þorsteinn Halldórsson, núverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, tók við Blikum árið 2015 en hann gerði liðið að Íslandsmeisturum sama ár eftir að liðið hafði verið í talsverðu basli árin á undan.
„Það hjálpar mikið að fara inn á völlinn og þú veist nákvæmlega hvað þú átt að gera,“ sagði Rakel.
„Það var nóg að heyra hann öskra nafnið sitt, þegar maður stóð inn á vellinum, og þú vissir nákvæmlega hvað þú gerðir vitlaust,“ sagði Rakel meðal annars.
Viðtalið við Rakel í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.