Ekið á stúlku við áramótabrennu

Við áramótabrennu Sandgerðinga, sem fór fram  í gærkvöldi var ekið á 12 ára stúlku. að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum voru meiðsl stúlkunnar  ekki talin alvarleg en hún hafði gengið yfir Sandgerðisveginn og í veg fyrir bíl sem átti leið hjá.

Tveir menn voru handteknir eftir að bifreið þeirra lenti á grindverki við bensínstöð í Reykjanesbæ. Þeir voru báðir ölvaðir og grunaðir um akstur bifreiðarinnar en annar þeirra hafði reynt að komast undan lögreglu en var handtekinn á göngu í næsta nágrenni.  

Þá var tilkynnt um þrjú umferðaróhöpp í gærkvöldi en mjög mikil hálka var á Suðurnesjum. Á Reykjanesbrautinni hafnaði ein fólksbifreið á ljósastaur og önnur valt út fyrir veg. Á Suðurstrandarvegi, austan Grindavíkur valt fólksbifreið. Ekki hlutust meiðsl í þessum óhöppum en tjón á bílum var töluvert.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert