Lýst eftir 17 ára pilti

Hans Aðalsteinn Helgason.
Hans Aðalsteinn Helgason.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Hans Aðalsteini Helgasyni, 17 ára. Hann var klæddur í gallabuxur, hvíta hettupeysu og svarta hjólabrettaskó þegar hann fór frá heimili sínu í Hafnarfirði sl. laugardag.

Hans Aðalsteinn, sem er 183 sm á hæð, er snoðklipptur með dökka brodda. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Meðfylgjandi er mynd af Hans Aðalsteini.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert