Veittist að kennara

Kalla þurfti til lögreglu við grunnskóla í Reykjavík eftir hádegið í fyrradag. Þá hafði nemandi á unglingsaldri veist að einum kennara skólans og veitt honum áverka.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu skakkaði lögreglumaðurinn sem kom á staðinn leikinn. Haft var samband við föður nemandans sem kom í skólann og sótti hann. Í skýrslu lögreglumannsins kom fram að áverkarnir hefðu verið minniháttar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert