Íslandskynning í tengslum við frumsýningu The Bucket List

Skrifsstofa Ferðamálastofu í Bandaríkjunum hefur ráðist í kynningu á Íslandi …
Skrifsstofa Ferðamálastofu í Bandaríkjunum hefur ráðist í kynningu á Íslandi í tengslum við frumsýningu myndarinnar The Bucket List.

Kvikmyndin „The Bucket List” með stórleikurunum Jack Nicholson og Morgan Freeman í aðalhlutverkum verður frumsýnd í Bandaríkjunum í dag.   Í tengslum við myndina hefur verið ráðist í kynningu á Íslandi.

Auglýsingar hafa verið settar í dagblöð þar sem lesendum gefst kostur á að taka þátt í leik og vinna ævintýraferð til Íslands fyrir tvo.

Kynningunni er beint að íbúum Los Angeles, Chigago og Philadelphiu.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skrifstofa Ferðamálastofu í Bandaríkjunum notar þessa leið við markaðssetningu á Íslandi.

Í maí síðastliðnum var farið í svipaða kynningu í tengslum við myndina „Shrek the Third” og þótti kynningin bera góðan árangur.  Tugþúsundir Bandaríkjamanna tóku þátt í leiknum og freistuðu þess að krækja sér í ókeypis ferð til Íslands.

Að sögn Einars Gústavssonar, forstöðumanns skrifstofu Ferðamálastofu í New York, er búist við að svipað verði upp á teningnum nú.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert