Svanfríður verður bæjarstjóri út kjörtímabilið

Svanfríður Jónasdóttir
Svanfríður Jónasdóttir

Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, verður áfram bæjarstjóri út kjörtímabilið en samkvæmt samþykkt meirihlutans átti að skipta um bæjarstjóra á miðju kjörtímabili og framsóknarmenn að velja bæjarstjóra síðari hluta kjörtímabilsins. Þetta hefur orðið að samkomulagi milli aðstandenda B lista og J lista í Dalvíkurbyggð, sem nú mynda meirihluta bæjarstjórnar. Hilmar Guðmundsson, B lista verður forseti bæjarstjórnar og Bjarnveig Ingvadóttir B lista formaður bæjarráðs.

Á næstu dögum verður gengið frá nýjum samstarfssamningi á milli aðila, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert