Lýsa stuðningi við Ólaf

Félag ungra frjálslyndra lýsir yfir algerum stuðning við Ólaf F. Magnússon, borgarfulltrúa F-listans og segist fagna því að grundvallarmálefni Frjálslynda flokksins séu nú að fá brautargengi í Reykjavík.

Félag ungra frjálslyndra fagnar því sérstaklega að nýji borgarmeirihlutinn ætli sér að viðhalda eign almennings á Orkuveitu Reykjavíkur og orkuauðlindum hennar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert