Eitt tæknivæddasta apótek í Evrópu

Bessi Gíslason yfirlyfjafræðingur og Magnús M. Steinþórsson framkvæmdastjóri Lyfjavers við …
Bessi Gíslason yfirlyfjafræðingur og Magnús M. Steinþórsson framkvæmdastjóri Lyfjavers við inntak nýju lyfjaróbótanna.

Viðskiptaráðherra gagnsetti í dag róbóta í nýju apóteki Lyfjavers sem er eitt það tæknivæddasta í Evrópu. Apótekið opnar með formlegum hætti á morgun. 

Lyfjaver opnar nýtt apótek að Suðurlandsbraut 22 í Reykjavík á morgun. Nýja apótekið er í sama húsi og eldra apótek en aðstaða er öll mun stærri og betri bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.

Fram kemur í fréttatilkynningu að nýja apótekið sé án efa eitt það tæknivæddasta í Evrópu því þar hafa verið settur upp mjög öflugir APOSTORE 3000 róbótar þeir fyrstu sinnar tegundar á Íslandi og er búnaðurinn sérhannaður fyrir apótekið og afgreiðslu á lyfjapakkningum fyrir dvalar- og hjúkrunarheimili.

Það var Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra sem gangsetti róbótana á fundi með fjölmiðlamönnum í dag.  Róbótarnir taka við lyfjapakkningum, raða þeim upp í hillur í klefanum, sem þeir vinna í, og taka einnig til pantanir samkvæmt lyfseðli. Umráðasvæði róbótanna er 20 m2   rúmar það 22.000 pakkningar. Viðskiptavinir geta fylgst með á flatskjá hvernig róbótarnir vinna.
 
Fyrir er Lyfjaver með öfluga tölvustýrða lyfjaskömmtun, bæði fyrir einstaklinga og stofnanir, og var fyrirtækið  brautryðjandi í slíkri lyfjaskömmtun hér á landi og  fyrst til að taka slíka tækni í notkun árið 1999.



Róbótarnir starfa í rými sem er um 22 fermetrar að …
Róbótarnir starfa í rými sem er um 22 fermetrar að stærð og getur geymt um 22 þúsund lyfjapakkningar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert