Ætlar að bretta upp ermar

Engar stórfelldar breytingar verða gerðar á starfsemi Borgarleikhússins, segir Magnús Geir Þórðarson, nýráðinn leikhússtjóri. Þó megi búast við einhverjum tilfæringum. Hann segist kveðja Leikfélag Akureyrar (LA) með trega, en hlakkar að sama skapi til að takast á við nýtt og spennandi verkefni.

Velgengni LA undir stjórn Magnúsar Geirs hefur vakið mikla athygli, en hann segir engan galdur liggja þar að baki annan en góðan starfsanda og leikgleði samhents hóps.

Eftirmaður Magnúsar Geirs í leikhúsinu nyrðra mun taka við góðu búi. Ekki er ljóst hver það verður en fráfarandi leikhússtjóri segir marga koma til greina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert