Ólafur skipaður hagstofustjóri

Forsætisráðherra hefur skipað Ólaf Hjálmarsson, skrifstofustjóra, í embætti hagstofustjóra til næstu fimm ára frá 1. mars nk.

Um starf hagstofustjóra sóttu 9 manns.

Ólafur er fæddur 1957. Hann lauk cand. oecon. prófi frá viðskiptadeild Háskóla Íslands árið 1984 og MA gráðu í þjóðhagfræði frá York University í Toronto árið 1986. Hann hefur verið skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins frá árinu 1999 og staðgengill skrifstofustjóra á árunum 1992 til 1999.

Staða Hagstofu Íslands breyttist um síðustu áramót við gildistöku laga  um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð. Hagstofan er nú sjálfstæð stofnun sem heyrir undir forsætisráðherra en fram að því hafði hún haft stöðu ráðuneytis. Hagstofan er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu og hefur forystu um tilhögun, samræmingu og framkvæmd hennar. Þá skal hún ákveða verkefni sín og forgangsraða með hliðsjón af þörfum stjórnvalda, almennings, aðila vinnumarkaðarins og atvinnurekstrar fyrir tölfræðilegar upplýsingar, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert