Tólf gista fangageymslur

Frá því á miðnætti og til klukkan að verða tíu í morgun hafa 165 verkefni verið bókuð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tólf manns gista fangageymslur vegna ölvunar, fíkniefna, slagsmála og ölvunaraksturs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni núna á tíunda tímanum.

Sex árekstrar urðu engin alvarleg slys á fólki, nokkuð eignartjón. Fimm voru teknir fyrir ölvun við akstur  einn tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Fjórar minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar, og fjórir fluttir á slysadeild.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert