Flutningi úr flugvélum lokið

Hilmar Bragi

Lokið var við að koma farþegum og áhöfnum , alls um 450 manns,  frá borði þriggja flugvéla Icelandair og inn í flugstöð Leifs Eiríkssonar klukkan rúmlega 10 í kvöld.  Aðgerðir gengu vel þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður.

Mjög hvasst var á flugvellinum og lemjandi rigning. Farþegar biðu í um fimm klukkustundir eftir því að komast frá borði en ófært var til að leggja landgöngum flugsöðvarinnar að vélunum.

Flugvallarstarfsmenn, flugöryggisverðir, slökkvið og lögregla mynduðu óslitna röð frá dyrum flugvélanna og aðstoðuðu fólkið við að komast að langferðabifreiðum sem flutti það að flugstöðinni.

Hilmar Bragi
Hilmar Bragi
Hilmar Bragi
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert