Yfirlýsing frá borgarlögmanni

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður sendi í dag frá sér tilkynningu „vegna forsíðufréttar Fréttablaðsins í dag,“ og segir hana „ekki gefa rétta mynd af samskiptum okkar Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um ummæli hans í Kastljósi.“

Kristbjörg segir:

„Forsíðufyrirsögn Fréttablaðsins í dag gefur ekki rétta mynd af samskiptum okkar Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um ummæli hans í Kastljósi. Við Vilhjálmur vorum sammála um að það væri ekki hlutverk embættismanna að tjá sig um samskipti sín við kjörna fulltrúa heldur væri eðlilegra að hann tjáði sig um málið sem hann og síðan gerði. Ég mun ekki tjá mig frekar um málið.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert