Bjargaði eiginkonu í hjartastoppi

Sveinbjörn og Tómas taka við viðurkenningunni úr hendi björgunarsveitarmanns. Guðrún …
Sveinbjörn og Tómas taka við viðurkenningunni úr hendi björgunarsveitarmanns. Guðrún er með þeim á myndinni. Árvakur/Júlíus

Rauði kross Íslands hefur valið feðgana Sveinbjörn Grétarsson og Tómas Sveinbjörnsson sem Skyndihjálparmenn ársins 2007 fyrir rétt viðbrögð á neyðarstundu.  Sveinbjörn og Tómas tóku við viðurkenningu Rauða krossins í björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð í dag.

Kona Sveinbjörns, Guðrún Hauksdóttir, hafði fundið fyrir slappleika en ekkert óeðlilegt greinst við læknisskoðun. Seint að kvöldi 26. september var hún að horfa á sjónvarpið þegar Sveinbjörn verður þess var að hún er eins og í krampakasti og hryglir í henni. Hann gerði sér umsvifalaust grein fyrir að hún var meðvitundarlaus, hringdi í Neyðarlínuna og hóf endurlífgun.

Vitandi að það getur tekið langan tíma fyrir sjúkrabíl að keyra upp á Kjalarnes þar sem þau búa, sendi hann Tómas 6 ára son sinn til að sækja nágranna þeirra, Þórð Bogason, sem unnið hefur í slökkviliði og sjúkraflutningum í fjöldamörg ár. Tilviljun ein réði því að Þórður var heima, og aðstoðaði hann Sveinbjörn við endurlífgunina.

Þórður kallaði einnig til björgunarsveitina Kjöl, sem kom með súrefni á staðinn áður en sjúkrabíllinn kom og læknishjálp barst. Guðrún hefur náð sér ótrúlega vel af veikindunum.

Þetta er í sjöunda sinn sem Rauði krossinn velur Skyndihjálparmann ársins. Viðurkenninguna hlýtur sá einstaklingur sem hefur á árinu veitt skyndihjálp á eftirtektarverðan hátt. Tilgangur tilnefningarinnar er ekki síður að hvetja aðra til að læra skyndihjálp og vera þar af leiðandi hæfari til að veita aðstoð á vettvangi slysa og áfalla. Auk viðurkenningarinnar hlýtur Skyndihjálparmaðurinn gjöf frá N1 sem hefur verið samstarfsaðili Rauða krossins um útbreiðslu skyndihjálpar síðastliðin þrjú ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert