Lögreglan varar verslunarfólk við
Kreditkort AP
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fyrir helgina mann, sem hafði brotist inn í íbúð og m.a. stolið þaðan greiðslukorti húsráðanda. Kortið notaði hann síðan til að svíkja út vörur í verslunum.
Að þessu tilefni, og ýmsum öðrum sambærilegum, er brýnt fyrir öllu afgreiðslufólki í verslunum að skoða vel myndir á bakhlið greiðslukorta og bera saman við handhafa og bera saman undirskriftir. Mikilvægt er að afgreiða alls ekki vörur út á greiðslukort sem er framvísað af öðrum en handhafa kortsins. Reyni einhver að fá vörur út á greiðslukort, sem greinilega er ekki eign hans, þarf að kalla til lögreglu. Þá þarf að taka til hliðar kort, sem eru vákort, eða ætla megi að svo sé.
Greiðslukort, sem stolin hafa verið, eru gjarnan notuð til að taka út vörur, staðgreiddar eða á raðgreiðslum. Þótt flest afgreiðslufólk í verslunum skoði kortin og hafi upplýst um tilraunir í þessum efnum, hafa komið upp tilvik þar sem nægilegrar aðgæslu hefur ekki verið gætt.
Nýlegt dæmi er um ungan mann, sem „keypti" vörur í einni verslun í tvígang sama dag fyrir rúmar þrjúhundruð þúsund krónur. Hann lét útbúa raðgreiðslur í bæði skiptin, sem er sennilega til þess að eiga síður hættu á synjun á kortið.
Af upptökum úr öryggiskerfi verslunarinnar að dæma var hann hvorki spurður um persónuskilríki, né litið á kortið um hvort hann gæti verið eigandi þess eða ekki. Hann var látinn skrifa undir raðgreiðslusamningana og gekk síðan út með vörurnar. Vörurnar lét maðurinn síðan í skiptum fyrir fíkniefni.
Þá er dæmi um að afgreiðslumaður í verslun hafi „straujað" greiðslukort viðskiptavinar þrisvar sinnum. Alltaf komu upplýsingar fram um að um vákort væri að ræða. Þrátt fyrir það fór manneskjan út úr versluninni - með kortið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Innlent »
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 19. febrúar 2008, Innlent Stolið greiðslukort notað til að svíkja út vörur á Selfossi
- Laugardagur, 26. maí 2007, Innlent Grunuð um stórfelld fjársvik
- Fimmtudagur, 25. janúar 2007, Innlent Gæsluvarðhaldsúrskurður vegna íkveikju staðfestur
- Þriðjudagur, 2. september 2008, Innlent Hálf milljón út á stolin greiðslukort
- Miðvikudagur, 16. apríl 2008, Innlent Grunuð um kortasvik
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































